Tamningastöð Joensen

Tamningar

Tamning hjá okkur er alltaf gerð á hraða hestsins og notumst við aðeins við hestvænar tamningaraðferðir.

Hestar eru eins og mannfólk og þroskast einstaklingsbundið og er því enginn hestur eins, þeir eru allir mismunandi.

Mikilvægt er að hafa í huga að hesturinn er flóttadýr og er því aðal atriðið að byggja upp sjálfstraust hestsins.
Hann öðlast sjálfstraust þegar hann hefur lært á jákvæðan hátt til hvers er ætlast af honum.
Við pössum okkur að allar kennslu stundir hestsins séu jákvæð upplifun fyrir hann og hann taki ekki næstu skref fyrr en hann er orðin tilbúinn til þess.

Um okkur

Tamningastöð Joensen er staðsett í Þorlákshöfn og er rekin af Sóley Rós Joensen.

Sóley hefur verið að rækta og temja hesta um árabil með mikla reynslu og þekkingu í sínu starfi.

Hafðu samband